13.5.2025 11:25

Öllu gamni fylgir alvara

Nú eins og oft áður var leitast við að stjórnmálavæða Eurovision með því að blása til andstöðu við Ísrael.

Bjarki Sigurðsson segir á Vísi í dag (13. maí) frá dómararennsli fyrra undankvölds Eurovision sem fram fór að kvöldi 12. maí í Basel í Sviss. Var hann viðstaddur rennslið og hrósar íslensku Væb-bræðrunum Hálfdáni Helga og Matthíasi Davíð Matthíassonum. Íslenski hópurinn verður fyrstur á sviðið í kvöld og þar ræðst hvort hann kemst áfram í lokakeppnina.

Bjarki segir meðal annars: „Vááááá hvað íslenski hópurinn er flottur. [...] Þeir fengu í það minnsta topp fimm mesta lófatakið eftir flutninginn, sem var notabene óaðfinnanlegur. Atriðið flott og ég er alltaf að sannfærast meira og meira um að Væb muni stíga aftur á svið á laugardagskvöldinu hér í Basel.“

Images-vaebVæb-bræður, Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir (mynd: Facebook).

Sterkustu orð Bjarka falla um Svíana: „Þakið ætlaði að rifna af höllinni allt atriðið. Flestir fengu brjáluð fagnaðarlæti eftir atriðið sitt (Væb fengu líka fagnaðarlæti fyrir atriðið sitt) en það voru bara læti allt sænska atriðið. Það var líka fáránlega flott. Magnað, yndislegt og flott, komast hundrað prósent áfram og gætu unnið?“

Finnska ríkisútvarpið Yle segir að finnskir fjölmiðlar séu í dag fullir af frásögnum af Eurovison þótt finnska lagið Ich Komme verði ekki flutt fyrr en síðara undankvöldið, fimmtudaginn 15. maí.

Finnsku fjölmiðlarnir endurspegla gífurlegar vinsældir sænska framlagsins til Eurovision í ár. Því er lýst sem finnsk-sænsku lofi KAJ um saunu undir heitinu: Bara Bada Bastu.

Í finnska stórblaðinu Helsingin Sanomat er gert grín að sauna-venjum Svía og vitnað í orð KAJ um að Svíar borði snakk í sauna og sitji meira segja við bóklestur sem sé í algjörri andstöðu við spa-andrúmsloftið sem eigi að ríkja í saununni.

Í Iltalehti birtist hins vegar dálkur eftir blaðakonu í Basel sem gaf til kynna að hún skammaðist sín fyrir að vera Finni þar vegna þess hve fáir væru hrifnir af opinberu framlagi Finna, ekkert annað kæmist að en lof á KAJ.

Hér hefur í áranna rás oft verið látið eins og íslenska lagið sé sigurstranglegra en síðan reynist. Eitt er víst að Væb-bræður bera með sér orku og gleði sem ásamt lagi þeirra skilar þeim vonandi inn á lokakvöldið – til þess er leikurinn gerður.

Nú eins og oft áður var leitast við að stjórnmálavæða Eurovision með því að blása til andstöðu við Ísrael. Hjá ráðamönnum sem taka þátt í þeim leik fylgir ekki hugur máli nema þeir leggi þátttöku liðs frá eigin landi að veði og skapi þannig uppnám innan stjórnar EBU, Samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva, sem á síðasta orðið.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði í samtali við Bylgjuna 22. apríl að henni þætti óeðlilegt að Ísrael fengi að taka þátt í Eurovision, á vettvangi EBU ætti Ísland að beita sér gegn þátttöku Ísraela. Hún teldi þó að Ísland ætti að vera með en ekki sniðganga keppnina.

Þetta hallærislega tal var til heimabrúks. Öðru máli gegnir um ákvörðun utanríkisráðherra að ákveða í liðinni viku án samráðs við utanríkismálanefnd alþingis að skipa Íslandi í hóp þeirra sex Evrópuríkja sem beita sér harðast gegn Ísrael. Reynslumesti ráðherra ríkisstjórnarinnar hljóp þarna illa á sig.